- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Knorr glímir við meiðsli

- Auglýsing -

Juri Knorr, einn helsti lykilmaður Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu, gat ekki tekið þátt í fyrsta leik Aalborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni eftir að Evrópumótinu lauk fyrr í mánuðinum. Knorr glímir við hnémeiðsli.

Fjarvera hans kom þó ekki að sök fyrir Aalborg sem vann öruggan sigur á Sønderjyske, 35:25, í gærkvöldi. Aalborg hefur raunar borið af á tímabilinu og er langefst í deildinni með fullt hús stiga eftir 19 leiki.


„Ég á í smá vandræðum með hnéð á mér, það veldur mér sársauka. Þetta er ekki sérlega alvarlegt og við erum að skoða þetta nánar. En það var gott að ég gat fengið hvíld í dag,“ sagði Knorr í samtali við dönsku sjónvarpsstöðina TV 2 Sport eftir leikinn í gærkvöldi.

„Þetta gerðist í milliriðli EM. Við sjáum til hversu slæmt þetta er. Ég vonast til þess að geta spilað aftur um næstu helgi,“ bætti hann við.

Simon Hald, línumaður Aalborg og Evrópumeistara Danmerkur, er einnig fjarri góðu gamni eftir að hafa fengið hjartsláttartruflanir í undanúrslitum EM gegn Íslandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -