- Auglýsing -
Amelía Dís Einarsdóttir hefur ákveðið að ganga á ný til liðs við ÍBV eftir eins árs veru hjá norska liðinu Rival í Haugasundi sem Jörgen Freyr Ólafsson Naabye þjálfar.
Amelía, fædd árið 2004, er uppalin ÍBV-ingur og hefur á sínum ferli unnið marga Íslandsmeistaratitla í yngri flokkum félagsins. Hún hefur jafnframt orðið bæði bikar- og deildarmeistari með meistaraflokki kvenna. Amelía skoraði t.d. 53 mörk í 19 leikjum með ÍBV í Olísdeildinni í tímabilið 2023/204.
Amelía hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og á einnig mörk og leiki að baki í Evrópukeppnum með félaginu.
- Auglýsing -