Eftir fyrsta tapið í 10 mánuði á síðasta laugardaginn komst Kadetten Schaffhausen inn á sigurbraut í A-deildinni í Sviss á ný í gærkvöldi. Kadetten Schaffhausen vann HC Kriens-Luzern í æsilega spennandi leik á heimavelli síðarnefnda liðsins, 27:26.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þrjú mörk fyrir Kadetten Schaffhausen í leiknum, tvö þeirra úr vítaköstum. Patrik Martinovic var markahæstur með sex mörk. Moreno Car, markvörður Kadetten, átti stórleik. Hann varði 17 skot, þar af tvö vítaköst, 42%.
Radojica Cepic var atkvæðamestur hjá HC Kriens-Luzern með níu mörk í 10 skotum.
Með yfirburðastöðu
Kadetten Schaffhausen er efst í svissnesku A-deildinni með 40 stig eftir 21 leik. Pfadi Winterthur er í öðru sæti með 29 að loknum 21 leik og HC Kriens-Luzern er þar á eftir með 25 stig en hefur aðeins lokið 18 leikjum.



