- Auglýsing -
Eins og undanfarin ár heldur handbolti.is skrá yfir helstu félagaskipti meðal handknattleiksfólks sem greint hefur verið frá á síðustu mánuðum og vikum, jafnt innanlands sem utan.
Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagaskiptum á meðal handknattleikskvenna og félög hafa staðfest að taki gildi frá og með næsta keppnistímabili. Einnig er þeirra getið sem ákveðið hafa hætta og handbolti.is hefur fengið staðfest.
Skráin verður reglulega uppfærð.
Athugasemdir eða ábendingar: [email protected]
Innanlands
- Hildigunnur Einarsdóttir leikmaður Vals hefur ákveðið að hætta.
- Signý Pála Pálsdóttir frá Víkingi til Fjölnis.
- Ída Bjarklind Magnúsdóttir frá Víkingi til Selfoss.
- Andrea Gunnlaugsdóttir frá Fram til Gróttu (var á láni frá ársbyrjun).
- Herdís Eiríksdóttir frá ÍBV til KA/Þórs.
- Ásdís Guðmundsdóttir til Fram. Lék síðast með ÍBV 2023/2024.
- Steinunn Björnsdóttir leikmaður Fram hefur ákveðið að hætta.
- Þórey Rósa Stefánsdóttir leikmaður Fram hefur ákveðið að hætta.
- Berglind Þorsteinsdóttir leikmaður Fram hefur ákveðið að taka sér frí frá handbolta.
- Aníta Eik Jónsdóttir frá HK til Hauka.
- Katrín Anna Ásmundsdóttir frá Gróttu til Fram.
- Sigríður Hauksdóttir leikmaður Vals hefur ákveðið að hætta.
- Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir frá Selfossi til Aftureldingar.
- Embla Steindórsdóttir frá Stjörnunni til Hauka.
- Margrét Einarsdóttir frá Haukum til Stjörnunnar.
- Hulda Dagsdóttir frá Aftureldingu til Fram.
Milli landa eða félaga ytra
- Elín Klara Þorkelsdóttir frá Haukum til IK Sävehof.
- Elín Rósa Magnúsdóttir frá Val til Blomberg-Lippe.
- Sandra Erlingsdóttir frá TuS Metzingen til ÍBV.
- Lena Margrét Valdimarsdóttir frá Fram til Skara HF.
- Szonja Szöke frá MTK Budapest til FH.
- Amelía Dís Einarsdóttir frá Rival til ÍBV.
- Cornelia Hermansson frá Selfossi til Kungälvs HK.
- Mia Kristin Syverud frá Aker Topphåndball til Selfoss.
Karlar – helstu félagaskipti 2025
Þjálfarar – helstu breytingar 2025
Konur – helstu félagaskipti 2024
- Auglýsing -