- Auglýsing -
Ekkert varð af fyrirhuguðum leik ÍR og HK í Olísdeild karla í handknattleik sem fram átti að fara á heimavelli í ÍR í Skógarseli frá klukkan 16 í dag.
Vísir segir frá að ekki hafi tekist að lyfta körfuboltakörfum upp í þá hæð sem þær eiga að vera svo þær séu ekki fyrir þegar handboltaleikir fara fram í Skógarseli. Leikvöllurinn var þar af leiðandi ekki löglegur, segir í tölvupósti sem barst frá starfsmanni mótanefndar.
Þar með var ekkert annað í stöðunni en fresta leiknum.
Í tilkynningu frá mótanefnd HSÍ segir að leikurinn fari fram á mánudagskvöld klukkan 19.
Fréttin hefur verið uppfærð.
- Auglýsing -



