- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Kvöldkaffi: Óðinn, Tryggvi, Benedikt, Sigvaldi, Sigurjón, Ísak, Ólafur

- Auglýsing -
  • Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen eru komnir með annan fótinn í undanúrslit úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattleik. Þeir unnu GC Amicitia Zürich, 35:26, í annarri umferð átta liða úrslita í dag. Óðinn Þór skoraði 11 mörk fyrir Kadetten sem getur bundið enda á rimmuna á heimavelli á miðvikudaginn.
  • Tryggvi Þórisson skoraði fjögur mörk fyrir Elverum þegar liðið vann Fjellhammer, 33:27, í 26. og síðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag. Elverum varð efst í deildinni og fagnar þar með norska meistaratitlinum annað árið í röð. Framundan er úrslitakeppni
  • Kolstad var fjórum stigum á eftir Elverum. Kolstad vann stórsigur á Halden TH, 36:24, á heimavelli í dag.
  • Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú mörk og gaf sex stoðsendingar fyrir Kolstad í sigurleiknum. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk.
  • Sigurjón Guðmundsson varði þrjú skot, 27%, þá stund sem hann var í marki Kolstad. Óvíst er með öllu að tölfræði norska handknattleiksins sé rétt en ítrekað hefur orðið vart við handarbakavinnu við skráningu tölfræðinnar í leikjum tímabilsins.
  • Ísak Steinsson markvörður og samherjar í Drammen HK hans höfnuðu í fjórða sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Þeir unnu Follo á útivelli í dag, 32:30. Ísak varði 3 skot, 23%, þann tíma sem hann stóð vaktina í markinu. Óvíst er með öllu að tölfræði norska handknattleiksins sé rétt en ítrekað hefur orðið vart við handarbakavinnu við skráningu tölfræðinnar í leikjum tímabilsins.
  • Ólafi Brim Stefánssyni og samherjum hefur illilega fatast flugið í ítölsku A-deildinni í handknattleik undanfarnar vikur. Hver tapleikurinn hefur rekið annan. Síðast í dag tapaði Junior Fasano fyrir Chiaravalle, 29:20, á útivelli í 24. umferð. Ólafur Brim skoraði tvisvar fyrir Junior Fasano sem fallið er niður í 7. sæti og má telja til kraftaverka ef liðinu tekst að krækja í eitt af fjórum efstu sætum deildarinnar sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni um ítalska meistaratitilinn.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -