- Auglýsing -
Sænska landsliðskonan Anna Lagerquist ætlar að leggja handboltaskóna á hilluna í lok leiktíðar aðeins 32 ára gömul. Evrópumeistarar Györ segja frá ákvörðun Lagerquist en hún hefur leikið með þeim síðustu ár.
Þrálát og erfið meiðsli hafa sett stórt strik í reikning Lagerquist síðustu ár og mun nú svo vera komið að hún hefur fengið sig fullsadda af handknattleiksiðkun.
Lagerquist hefur þótt ein snjallasta varnarkona handknattleiksins undanfarin ártug og fyrir vikið leikið með nokkrum fremstu liðum heims, m.a. Rostov-Don, Nantes auk Györ.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -



