Danska stórliðið Aalborg Håndbold hefur skrifað undir nýjan samning við markvörðinn reynda Niklas Landin. Sömuleiðis hefur Aalborg tilkynnt að yngri bróðir hans, Magnus Landin, gangi til liðs við félagið í sumar frá THW Kiel.
Niklas, sem er 37 ára gamall, skrifaði undir þriggja ára samning og verður því samningsbundinn Aalborg fram á fimmtugsaldur. Magnus er þrítugur vinstri hornamaður og skrifaði sömuleiðis undir þriggja ára samning, til sumarsins 2029.
Niklas hefur leikið með Aalborg frá árinu 2023 og Magnus hefur verið á mála hjá Kiel frá árinu 2018. Bræðurnir voru samherjar hjá Kiel frá 2018 til 2023 auk þess að leika um árabil saman með danska landsliðinu. Niklas er hættur að leika með landsliðinu.
Aalborg er með fullt hús stiga á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 20 umferðir og er búið að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.



