Blomberg-Lippe með landsliðskonurnar Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttir í fremstu víglínu, vann bronsverðlaunin í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í dag. Blomberg-Lippe lagði Thüringer HC, 29:27, í úrslitaleik um bronsið í Porsche Arena í dag.
Staðan var jöfn í hálfleik, 13:13. Thüringer HC var með yfirhöndina framan af í síðari hálfleik. Leikmenn Blomberg-Lippe bitu í skjaldarrendur síðustu 10 mínúturnar, sneru við taflinu og skoruðu sex af síðustu átta mörkum leiksins.
- Díana Dögg skoraði 3 mörk, gaf 4 stoðsendingar, átti 3 sköpuð færi, vann 2 vítaköst, vann andstæðing einu sinni af leikvelli og náði 1 frákasti.
- Andrea skoraði 1 mark, fiskaði 1 vítakast, stal boltanum í tvígang, vann andstæðing einu sinni af leikvelli, varði 1 skot í vörninni og náði 1 frákasti.
- Elín Rósa skoraði ekki mark en átti 6 stoðsendingar, var með 3 sköpuð færi og vann 2 vítaköst.
Spánverjinn Ona Vegue Pena skoraði úr 10 vítaköstum og var markahæstur hjá Blomberg-Lippe.
Borussia Dortmund og HSG Bensheim/Auerbach mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar síðar í dag.
Bronsleikur bíður Íslendinga í Stuttgart



