„Þetta er virkilega gott. Þetta er geggjuð tilfinning auðvitað að vinna FH. Við áttum inni eftir síðasta leik og sýndum frábæra frammistöðu í dag og kláruðum þetta,“ sagði Freyr Aronsson, leikmaður Hauka, í samtali við handbolta.is eftir að liðið lagði FH 25:21 í undanúrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.
Freyr átti frábæran leik fyrir Hauka, var markahæstur í liðinu, ásamt Ólafi Ægi, með sjö mörk, gaf auk þess sjö stoðsendingar og fiskaði þrjú vítaköst. Þá var hann öflugur í vörninni.
Aðeins ein vika er síðan FH vann Hauka með sjö mörkum í Olísdeildinni á sama velli og var því hefndarhugur í Haukum í kvöld.
„Já, klárlega. Það er ekkert annað í stöðunni þegar maður tapar með sjö fyrir FH á heimavelli. Þá vill maður helst mæta strax á völlinn og svara fyrir sig. Við vorum að bíða eftir þessum leik og gerðum þetta vel í dag,“ sagði Freyr.
Höldum okkur niðri á jörðinni
Spurður hvað það hafi verið sem skóp sigur Hauka í kvöld sagði hann:
„Varnarlega vorum við drullugóðir, með helvíti mörg fríköst. Við náðum að stoppa tempóið hjá þeim og sóknarlega vorum við að finna lausnir á vörnum þeirra. Ef það var eitthvað vorum við kannski að klikka aðeins á færum en síðan endaði þetta oftast í netinu. Ég er virkilega sáttur við það.“
Freyr kvaðst spenntur fyrir þeim möguleika að verða bikarmeistari á heimavelli á laugardaginn.
„Ég er virkilega spenntur, sérstaklega þar sem það er langt síðan Haukarnir unnu bikar. Við erum spenntir og það er mikið hungur í okkur. Við ætlum að halda okkur niðri á jörðinni og mæta agaðir til leiks.“


