- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Leikið verður til sigurs

- Auglýsing -

„Þetta eru leikirnir sem við viljum og þurfum að fá og lærum hvað mest af,“ segir Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik um væntanlega viðureign við Portúgal á morgun á Ásvöllum í lokaumferð Evrópukeppni kvenna í handknattleik. Viðureignin, sem hefst klukkan 16, er hreinn úrslitaleikur fyrir bæði lið um sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem haldið verður í desember. Íslenska landsliðið þarf að vinna með tveggja marka mun til þess að standa betur að vígi þegar staðan í riðlinum verður gerð upp. Portúgalska liðið vann fyrri viðureignina með eins marks mun, 26:25, í Matosinhos í úthverfi Porto í október.

Hærra spennustig

„Við búum okkur undir hörkuleik. Við höfum farið vel yfir portúgalska liðið og okkar leiki upp á síðkastið. Segja má að undirbúningurinn sé hefðbundinn en vissulega er spennustigið hærra en oft áður,“ segir Arnar sem teflir fram sama leikmannahóp á morgun og lék við Færeyinga ytra á miðvikudagskvöldið.

Uppselt á leikinn

Samkvæmt upplýsingum frá HSÍ gengu allir aðgöngumiðarnir út sem gefnir voru út á dögunum og þar með er uppselt á viðureignina. Reikna má með allt að 1.800 áhorfendum sem tryggja á góða umgjörð og stuðning við íslenska liðið í leiknum. Arnar segir þessa staðreynd vera mikilvæga.

„Við vorum að koma úr leik í Þórshöfn þar sem þjóðarhöll Færeyinga var fullsetin og stemningin gríðarlega góð og meðbyr með kvennahandboltanum. Ég vona svo sannarlega að við fáum mikinn stuðning í síðasta leik okkar í undankeppninni.“

Jafn riðill

Arnar segir enn fremur að búið sé að hreinsa loftið eftir tapið í Færeyjum. Þeirri viðureign hafi verið ýtt frá og einbeiting allra sé á leikinn gegn Portúgal á morgun.

„Við tókum góð framfaraskref á HM og eins í leikjunum við Svartfellinga í mars. Okkur tókst ekki að stíga framfaraskref gegn Færeyingum í vikunni. Úr því viljum við bæta á sunnudaginn og tryggja okkur sæti í lokakeppni EM með því að vinna síðasta leikinn í þessum jafna riðli,“ segir Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik í viðtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -