Vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla fimmtudaginn 19. mars og laugardaginn 21. mars fara fram í N1-höll Valsara við Hlíðarenda og í Kaplakrika, heimavelli FH. HSÍ sagði frá þessu í morgun og jafnframt að miðasala sé hafin á stubb.is.
Ómögulegt reyndist að taka Laugardalshöll á leigu vegna leikjanna þar sem hún hefur fyrir margt löngu verið bókuð fyrir vörusýningu á þeim dögum sem leikirnir við Svía fara fram.
Fyrri leikurinn gegn Svíum fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda, heimavelli Vals, fimmtudaginn 19. mars. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Síðari viðureignin verður í Kaplakrika, heimavelli FH, laugardaginn 21. mars klukkan 17.
A-landslið karla lék síðast í N1-höllinni, sem þá nefndist eitthvað annað, gegn Spánverjum í júlí 2008, skömmu áður en haldið var á Ólympíuleikana, sælla minninga.
Ár og dagur er síðan A-landsliðið lék síðast í Kaplakrika.


