Tveimur leikjum Íslendingaliðs SC Magdeburg í þýsku 1. deildinni hefur verið seinkað, báðum vegna knattspyrnuleikja sem fara fram sömu daga.
Magdeburg, sem Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson leika með, átti að mæta TVB Stuttgart í Stuttgart klukkan 14.30 þann 26. apríl en samkvæmt Handball World hefur þeim leik verið seinkað um hálftíma, til klukkan 15, vegna viðureignar VfB Stuttgart gegn SV Werder Bremen í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Viku síðar fær Magdeburg lið SG Flensburg-Handewitt í heimsókn og hefur þeim leik sömuleiðis verið seinkað, að þessu sinni um eina og hálfa klukkustund. Upphaflega átti sá leikur að hefjast klukkan 14.30 þann 3. maí en fer þess í stað fram klukkan 16.
Ástæðan fyrir því er annar knattspyrnuleikur, viðureign 1. FC Magdeburg og Hertha Berlín í þýsku B-deildinni sem fer fram í hádeginu 3. maí.



