Jónsmessan er greinilega sá tími ársins sem handknattleiksfólk laðast að Aftureldingu í Mosfellsbæ. Þrír leikmenn hafa boðað komu sína til Aftureldingar að kveldi Jónsmessu, daginn eftir að Sólmánuður hófst.
Fyrst tilkynnti Afturelding um að línukonan Arna Sól Orradóttir hafi gengið í raðir Aftureldingar. Hún var rétt búin að skrifa undir þegar penninn var færður yfir til Sigurdísar Sjafnar Freysdóttur markvarðar sem skrifaði undir samning við félagið áður en Karen Hrund Logadóttir tók næst við pennanum og staðfesti komu sína til Aftureldingar.
Sigurdís Sjöfn er markvörður sem kemur frá FH eins og Karen Hrund sem leikur bæði sem leikstjórnandi og skytta, eftir því sem fram kemur í tilkynningum frá Mosfellingum í kvöld.
Konur – helstu félagaskipti 2025