Hörður frá Ísafirði átti ekki mikið erindi í Stjörnuna í fyrsta úrslitaleik liðanna í umspili Olísdeildar karla í kvöld er liðin leiddu saman kappa sína í Hekluhöllinni. Stjarnan vann með 15 marka mun, 35:20, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 16:10.
Snemma var ljóst að viðureignin yrði leikur kattarins að músinni. Stjörnumenn voru mjög ákveðnir frá byrjun og gáfu baráttuglöðum leikmönnum Harðar aldrei höggstað á sér.
Liðin mætast á ný á Ísafirði á laugardaginn. Liðið sem fyrr vinnur þrjár viðureignir öðlast sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Tapliðið verður í Grill 66-deildinni.
Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 6, Daníel Karl Gunnarsson 5, Matthías Dagur Þorsteinsson 4, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 4, Hans Jörgen Ólafsson 3, Jón Ásgeir Eyjólfsson 3, Tandri Már Konráðsson 3, Jóel Bernburg 2, Róbert Orri Arason 2, Aron Valur Gunnlaugsson 1, Atli Hrafn Bernburg 1, Loftur Ásmundsson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 19.
Mörk Harðar: Guilherme Carmignoli De Andrade 8, Jose Esteves Lopes Neto 4, Jhonatan C. R. Dos Santos 3, Shuto Takenaka 2, Axel Vilji Bragason 1, Einar Orri Einarsson 1, Kei Anegayama 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 7, Hermann Alexander Hákonarson 3.



