Lena Margrét Valdimarsdóttir leikur til úrslita í sænsku bikarkeppninni á morgun með stöllum sínum í Skara HF eftir nauman sigur á Höörs HK H 65 í undanúrslitaleik í dag, 32:31. Skara mætir Boden Handboll IF í úrslitaleiknum. Boden vann Kristianstad HK, 36:29, í hinni viðureign undanúrslita.
Lena Margrét skoraði tvö mörk í undanúrslitaleiknum í dag sem fram fór í Skövde Arena.
Berta Rut skoraði sjö mörk
Berta Rut Harðardóttir skoraði sjö mörk fyrir Kristianstad HK í tapleiknum við Boden.
Ekki verður aðeins leikið til úrslita á morgun. Einnig mætast Kristianstad HK og Höörs HK H 65 í viðureign um þriðja sætið.
Úrslitaleikur Skara HF og Boden Boden Handboll IF hefst klukkan 15.05 á morgun, sunnudag, fyrir þá sem hafa tök á fylgjast með.



