- Auglýsing -

Liðssamvinna fleytir Aldísi Ástu og félögum til Evrópu

Aldís Ásta Heimisdóttir leikmaður Skara HF. tekur þátt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Sænska meistaraliðið Skara HF sem Aldís Ásta Heimisdóttir leikur með og Lena Margrét Valdimarsdóttir gengur til liðs við í sumar, ætlar að taka þátt í Evrópukeppni félagsliða í fyrsta sinn á næsta leiktíð. Félagið hefur ákveðið að taka sæti í Evrópudeildinni eftir að séð hefur verið fyrir endann á fjármögnun liðsins til keppninnar. Frá þessu er greint á Handbollskanalen.


Þar segir að allir innan þessa litla félags, sem kom svo skemmtilega á óvart á síðasta keppnistímabili með því að verða tvöfaldur meistari, hafi lagst á eitt til að fjármagna þátttökuna. Með sanni má segja að um sannkallaða hópfjármögnun hafi verið um að ræða.

Ríkulegur stuðningur banka

Miklu máli skipti að Sparbanksstiftelsen Skaraborg og Sparbanken Skaraborg ábyrgjast stuðning upp á 600.000 sænskar krónur, jafnvirði 7,7 milljóna ísl. Fleiri fyrirtæki hafa lagt í púkkið auk þess sem leikmenn hafa safnað styrkjum.

„Á heildina getum við sagt að það sé liðssamvinna sem gerir okkur kleift að spila í Evrópu,“ segir Håkan Persson, formaður félagsins.

Ekki kemur fram hversu hárri upphæð hefur verið safnað enda alls ekki heldur víst hversu mikið þarf til þess að standa undir kostnaði enda ekki hægt að slá föstu um hversu margir leikirnir verða.


Ystads IF, sem varð sænskur meistari í karlaflokki, gaf á dögunum upp á bátinn að vera með í Evrópukeppni á næsta tímabili af fjárhagslegum ástæðum. Félagið kom út úr þátttökunni í Evrópudeildinni á síðasta tímabili í verulegan halla og það ekki í fyrsta sinn.

Sænsku meistararnir spara – engin Evrópukeppni

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -