Lilja Ágústsdóttir handknattleikskona hjá Íslands- og bikarmeisturum Vals hefur samið við þýska efstu deildarliðið BSV Sachsen Zwickau frá og með næsta keppnistímabili. Félagið sagði frá væntanlegri komu Lilju í tilkynningu í dag.
Lilja, sem verður 22 ára 30. apríl, er engu að síður að ljúka sínu sjöunda tímabili í meistaraflokki. Meiðsli hafa reyndar sett strik í landsliðsreikninginn síðustu misseri. Lilja er hins vegar á réttri leið og stefnir á að mæta til leiks í þýska handboltann af krafti síðsumars. Hún hefur áður reynt fyrir sér utan landsteinanna en leiktíðina 2022/2023 var Lilja með Lugi í Svíþjóð og var um skeið samtíða systur sinni Ásdísi Þóru hjá Lundarliðinu.
BSV Sachsen Zwickau er í næst neðsta sæti af 11 liðum þýsku 1. deildarinnar þegar liðið á þrjá leiki eftir. Mikil spenna er í botnbaráttunni en þrjú þau neðstu taka þátt í umspili um keppnisrétt í deildinni á næstu leiktíð. Hins vegar hefur BSV Sachsen Zwickau enn alla möguleika á að lyfta sér upp úr einu af þremur umspilssætum á endasprettinum. Stefnt er á að 12 lið verði í 1. deild á næstu leiktíð eins og verið hefur um árabil. Óvænt gjaldþrot Ludwigsburg rétt áður en flautað var til leiks sl. haust var til þess að aðeins 11 lið skipa deildina í vetur.
Mikil gróska er í handknattleik kvenna um þessar mundir. Silfurverðlaun kvennalandsliðs Þýskalands á EM í vetur hefur orðið til þess að auka áhugann til muna.
Díana Dögg Magnúsdóttir landsliðskona lék með BSV Sachsen Zwickau frá 2020 til 2024.



