Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, verður í F-riðli á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Póllandi frá 18. ti 29. júní. Dregið var í riðla í dag í Ósló. Með íslenska liðinu í riðli verða landslið Norður Makedóníu og Rúmeníu. Ekki liggur fyrir hvert fjórða liðið verður í riðlinum. Fram kemur í frétt á heimasíðu Alþjóða handknattleikssambandsins að vegna þess að ekkert lið frá Eyjajálfu taki þátt leiti IHF að landsliði til þess að fylla fjórða sætið í riðlinum.
Ísland var í efsta styrkleikaflokki og naut þess m.a. að hafa unnið bronsverðlaun á HM21 árs liða sumarið 2023.
Leikir F-riðils fara fram í Katowice en einnig verður leikið í Plock, Sosnowiec og Kielce í riðlakeppni mótsins. Alls taka 32 lið þátt í mótinu. Þau voru dregin í átta riðla.
A-riðill (Płock): Noregur, Pólland, Slóvenía, Úrúgvæ.
B-riðill (Sosnowiec): Austurríki, Ungverjaland, Argentína, Brasilía.
C-riðill (Płock): Svíþjóð, Japan, Suður Kórea, Bandaríkin.
D-riðill (Sosnowiec): Portúgal, Króatía, Alsír, sigurlið IHF-bikarsins.
E-riðll (Katowice): Danmörk, Frakkland, Marokkó, Mexíkó.
F-riðill (Katowice): Ísland, Norður Makedónía, Rúmenía, boðskort-wild card.
G-riðill (Kielce): Þýskaland, Túnis, Serbía, Sviss.
H-riðill (Kielce): Spánn, Egyptaland, Barein, Sádi Arabía.
Tvö efstu lið hvers riðils fara í milliriðla en tvö þau neðri leika um forsetabikarinn. Aðeins annað fyrirkomulag en á mótum A-landsliða þar sem þrjú efstu lið hvers riðils taka sæti í millriðlum en aðeins neðsta lið hvers riðils leikur um forsetabikarinn.
Einar Andri Einarsson og Halldór Jóhann Sigfússon eru þjálfarar 21 árs landsliðs karla.