- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni karla – úrslitin hefjast 25. mars

- Auglýsing -

Lokaumferð Olísdeildar karla fór fram í heild sinni í kvöld og er þar með ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð átta liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn.

Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn og mætir því HK sem náði áttunda og síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina. FH mætir þá ríkjandi Íslandsmeisturum Fram.


Bikarmeistarar Hauka etja kappi við Aftureldingu þar sem Gunnar Magnússon þjálfari Hauka mætir sínum gömlu lærisveinum. Loks mætir ÍBV liði KA.

Tveir leikir 25. mars og tveir leikir 26. mars

Valur, FH, Haukar og ÍBV tryggðu sér heimavallarrétt og byrja því á heimavelli og enda á heimavelli ef þess þarf í fyrstu umferðinni, þar sem þarf einungis að vinna tvo leiki til þess að komast áfram í undanúrslit.

HSÍ hefur ekki gefið út nákvæmlega hvenær ákveðnar viðureignir fara fram en ljóst er að fyrsta umferðin í úrslitakeppninni hefst þann 25. mars með tveimur leikjum og fylgja aðrir tveir leikir daginn eftir, 26. mars.


Drög að dagskrá úrslitakeppninnar með lykildagsetningum má finna á heimasíðu HSÍ.

Vinna þarf tvo leiki í átta liða úrslitum til þess að komast í undanúrslit.

Viðureignirnar í átta liða úrslitum Íslandsmótsins:

Valur – HK.
FH – Fram.
Haukar – Afturelding.
ÍBV – KA.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -