- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ljóst hvaða lið mætast í útsláttarkeppni Meistaradeildar karla

- Auglýsing -

Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla lauk í gærkvöld. Þar með er einnig skýrt hvaða átta lið mætast í útsláttarkeppni um fjögur laus sæti í átta liða úrslitum.

Viðureignir útsláttarkeppninnar:
Pick Szeged – Industria Kielce.
-Janus Daði Smárason leikur með Pick Szeged.
Sporting Lissabon – Orlen Wisla Plock.
-Orri Freyr Þorkelsson leikur með Sporting.
GOG – HBC Nantes.
One Veszprém – Paris Saint-Germain.
-Bjarki Már Elísson leikur með One Veszprém.

  • Fyrri umferð útsláttarkeppninnar verður 1. og 2. apríl.
  • Síðari umferð útsláttarkeppninnar verður 8. og 9. apríl.

Fjögur lið sitja yfir

Füchse Berlin, Aalborg Håndbold, Barcelona og SC Magdeburg hrepptu tvö efstu sæti í riðlakeppninni og sitja reglum samkvæmt yfir í útsláttarkeppninni og taka sæti í átta liða úrslitum.

Átta liða úrslit:
One Veszprém eða PSG – Füchse Berlin.
GOG eða Nantes – Barcelona.
-Viktor Gísli Hallgrímsson er markvörður Barcelona.
Sporting eða Wisla Plock – Aalborg Håndbold.
Pick Szeged eða Kielce – SC Magdeburg.
-Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með SC Magdeburg.

  • Fyrri umferð átta liða úrslita verður 29. og 30. apríl.
  • Síðari umferð átta liða úrslita verður 6. maí.
  • Úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu verður 13. og 14. júní. Leikið verður að vanda í Lanxess Arena í Köln í Þýskalandi.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -