- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Lófinn tekinn hefur að mestu leyti leyst spjöldin af hólmi

- Auglýsing -

„Ég les í lófa þínum leyndarmálið góða,“ sögn Eiríkur Hauksson um árið. Tímarnir breytast og mennirnir með. Sannarlega eru handknattleiksdómarar engin undantekning þar á. Eins og þeir sem fylgjast reglulega með handboltaleikjum hér heima hafa e.t.v. tekið eftir þá eru dómarar nær því hættir að skrifa hjá sér minnisatriði á spjöld í sama mæli og áður. Ritarar, tímaverðir og eftirlitsmenn skrá orðið niður mörk á rafrænan hátt í mörgum leikjum.

Í stað spjaldanna verður algengara að dómarar riti minnisatriði í lófa sinn meðan á leikjum stendur eins og sjá má mynd Hafliða Breiðfjörð af lófa Þorvars Bjarma Harðarsonar þegar hann dæmdi leik ÍR og KA í undanúrslitum bikarkeppni karla í gær.

Um leið verða dómarar einnig að vera klárir á að lesa í lófa án þess þó að vera með of mikla spádóma áður þeir staðfesta leikskýrslur.

Helst nýtt til að áminna þjálfara

Reyndur dómari sagði við handbolta.is í dag að spjöldin væru æ sjaldnar notuð í síðari tíð, nema ef grípa þarf til þess rauða. Gula spjaldið er lítið notað. Helst eru þau dregin upp og lyft upp til þess að setja ofan í við afskiptasama þjálfara.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -