- Auglýsing -

Lögmaður og borgarstjóri taka á móti bronsliðinu í Þórshöfn

- Auglýsing -


Bronslið Færeyinga á heimsmeistaramótinu í handknattleik fær höfðinglegar mótttökur á morgun í Þórshöfn. Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, og Elsa Berg borgastjóri hafa boðið landsliðinu og starfmönnum til mótttöku í Vaglinum í Þórshöfn síðdegis á morgun.

Lúðarsveit Þórshafnar, Havnar Hornorkestur, leikur við mótttökuna. Eftir að formlegri mótttöku verður lokið gefst almenningi tækifæri til þess að hitta leikmenn, fá myndir og eiginhandaráritanir á plaköt, búninga og blöð.

21 árs landslið Færeyinga er það fyrsta sem vinnur til verðlauna á stórmóti í boltaíþrótt á vegum Alþjóðlegs íþróttasambands. Færeyska landsliðið vann Svía í leiknum um þriðja sæti á HM í Póllandi, 27:26.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -