Eftir talsverða mæðu að loknum síðustu leikjum þá tókst Arnari Birki Hálfdánssyni og samherjum í Amo HK að vinna leik í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Arnar Birkir átti stórleik og skoraði fimm mörk og gaf 11 stoðsendingar í þriggja marka sigri Amo HK á heimavelli, 34:31, á liðsmönnum Alingsås HK.
Amo HK er áfram í 12. sæti deildarinnar af 14. Liðið hefur nú 12 stig og er aðeins þremur stigum á eftir Alingsås sem er í næsta sæti fyrir ofan.
Einari Braga Aðalsteinssyni og liðsfélögum í IFK Kristianstad lánaðist ekki að setjast í annað sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í dag, eins og vonir stóðu til. Þeir töpuðu fyrir Önnereds í Gautaborg, 32:31.
Einar Bragi skoraði þrjú mörk í sjö tilraunum, gaf fimm stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli.
Fyrr í dag: Jafnt þegar Íslendingalið mættust á öðrum degi jóla
IFK Kristianstad er í þriðja sæti en staðan í deildinni er hér fyrir neðan.