Norska landsliðið í handknattleik kvenna, sem Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar, lauk keppni í Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna í dag með 20 marka sigri á landsliði Sviss, 42:22, í Zürich. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 21:7.
Norska landsliðið vann allar sex viðureignir sínar í keppinni nokkuð örugglega.
Í Evrópubikarnum taka þátt landslið sem ekki þurftu að fara í gegnum undankeppni fyrir Evrópumótið sem haldið verður í desember, þ.e. gestgjafarnir þrír, Austurríki, Ungverjaland og Sviss auk ríkjandi Evrópumeistara Noregs.
Stine Skogrand skoraði sjö mörk fyrir norska landsliðið í Saalsporthalle í Zürich. Skogrand var markahæst. Vilde Ingstad og Sunniva Næs Andersson skoruðu fimm sinnum hvor.
Mia Emmenegger var markahæst hjá Sviss með fimm mörk.
Ungverjaland vann Austurríki í Audi Arena í Györ í Ungverjalandi í síðasta leik keppninnar, 36:30.
Lokastaðan:
Noregur | 6 | 6 | 0 | 0 | 239:144 | 12 |
Ungv.land | 6 | 4 | 0 | 2 | 192:186 | 8 |
Sviss | 6 | 2 | 0 | 4 | 166:212 | 4 |
Austurríki | 6 | 0 | 0 | 6 | 159:214 | 0 |