- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lunde gerði gæfumuninn – Odense leikur um gullið – myndskeið

Katrine Lunde á vaktinni í undanúrslitaleik Meistaradeildar í kvöld. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Katrine Lunde markvörður getur unnið Meistaradeild Evrópu í áttunda sinn á morgun þegar Odense Håndbold mætir Győri Audi ETO í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í handknattleik kvenna í Búdapest. Odense-liðið vann frönsku meistaranna, Metz, 31:29, eftir framlengingu í síðari undanúrslitaleik Meistaradeildar kvenna síðdegis. Lunde varði síðasta markskot leikmanna Metz í venjulegum leiktíma og tryggði Odense framlengingu sem liðið vann, 4:2.

Danskt félagslið hefur ekki leikið til úrslita í Meistaradeild Evrópu síðan 2010 að Viborg vann keppnina með fyrrgreinda Lunde í markinu.


Odense leikur í fyrsta sinn til úrslita en liðið náði í fyrsta sinn í undanúrslit keppninnar að þessu sinni. Odense er einnig eina liðið sem fór í gegnum allar umferðir útsláttarkeppninnar að lokinni riðlakeppninni. Győri, Metz og Esbjerg sátu yfir í fyrstu umferð.

Metz þótti fyrirfram sigurstranglegra eftir að hafa eitt liða farið í gegnum alla keppnina án þess að tapa leik. Metz var þremur mörkum yfir, 16:13, í hálfleik eftir að hafa náð yfirhöndinni þegar á leið hálfleikinn.


Allt stefndi í öruggan sigur Metz framan af síðar hálfleik. Liðið var með fjögurra til fimm marka forskot áður en áhlaup danska liðsins hófst eftir miðjan hálfleikinn. Þegar 60 mínútum var lokið var staðan jöfn, 27:27. Lunde og félagar í Odense voru sterkari í framlengingunni og unnu, 31:29.

Leikmenn Odsene Håndbold fagna eftir hafa tryggt sér sæti í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ljósmynd/EPA

Þjálfari Odense, Ole Gustav Gjekstad, var þjálfari norska liðsins Vipers þegar það vann Meistaradeildina þrjú ár í röð, 2021, 2022, 2023. Gjekstad var ráðinn eftirmaður Þóris Hergeirssonar sem þjálfari norska landsliðsins. Hann hættir með Odense eftir úrslitakeppnina um danska meistaratitilinn innan fárra daga.


Mörk Metz: Emma Jacques 5, Sarah Noukit 5, Luice Granier 5, Léna Grandveau 5, Allison Pineau 4, Petra Vamos 2, Anne Mette Hanse 1, Zaliata Mlamali 1, Mannon Errad 1.
Varin skot: Cléopatre Darleux 9, 23,7% – Zsófi Szemerey 0.
Mörk Odense Hånddbold: Thale Rushfeldt Deila 6, Malin Aune 4, Elma Halilicevic 4, Mie Højlund 4, Helena Elver 4, Maren Aardahl 3,Andrea Hansen 3, Anna Grundtvig 2, Louise Burgaard 1.
Varin skot: Katrine Lunde 8, 40% – Althea Reinhard 6, 27% – Yara ten Holte 0.

Úrslitaleikur Odense Håndbold og Győri Audi ETO hefst klukkan 16 á morgun. Klukkan 13 mætast Esbjerg og Metz í leiknum um bronsverðlaun.

Ungversku meistararnir í úrslit – Esbjerg situr eftir

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -