- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Lunde spilar senn sína allra síðustu landsleiki

- Auglýsing -

Norski markvörðurinn Katrine Lunde, goðsögn í lifanda lífi, mun í næsta mánuði spila sína síðustu landsleiki á löngum og farsælum ferli sínum þegar Noregur mætir Rúmeníu og Slóvakíu í Evrópubikar EHF.

Lunde, sem er einn besti markvörður handknattleikssögunnar, er orðin 45 ára gömul og hefur átt ótrúlegu gengi að fagna á ferli sínum. Með Noregi hefur hún til að mynda unnið til 21 verðlaunapenings, þar af 13 gullverðlauna, á stórmótum.


Landsleikirnir eru orðnir 388 og verða að lokum 390. Fyrst mætir Noregur liði Rúmeníu þar í landi 8. apríl og svo kemur Slóvakía í heimsókn til heimabæjar Lunde í Kristiansand þann 12. apríl, þar sem hún spilar sínar síðustu mínútur á ferlinum.

Lunde tilkynnti eftir sigur Noregs á HM 2025 að um síðasta stórmót hennar á ferlinum hafi verið að ræða. Stærstan hluta landsliðsferilsins vann Lunde náið með Þóri Hergeirssyni, sem þjálfaði kvennalandslið Noregs um árabil með sögulega góðum árangri.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -