- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mætir Donni til leiks annað kvöld?

- Auglýsing -

Ekki er útilokað að handknattleiksmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leiki á ný með danska úrvalsdeildarliðinu Skanderborg AGF annað kvöld gegn Elverum í Evrópudeildinni. Donni gekkst undir aðgerð vegna kviðslits í janúar. Endurhæfing hefur gengið framar vonum eftir því sem fram kemur í tilkynningu félagsins í dag.


Í tilkynningunni segir einnig að hugsanlegt sé að Donni verði með Skanderborg AGF gegn Elverum annað kvöld. Ef það tekst ekki standi vonir til að Donni verði klár í slaginn á laugardaginn í leik gegn Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Donni kviðslitnaði fyrir áramót og varð að draga sig út úr landsliðinu sem tók þátt í Evrópumótinu í janúar vegna kviðslita. Í framhaldinu fór hann til Danmerkur og gekkst þar undir aðgerð til að fá bót meina sinna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -