-Auglýsing-

Magdeburg er áfram með örugga forystu eftir nauman sigur

- Auglýsing -

SC Magdeburg heldur áfram öruggri forystu í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir nauman sigur á harðskeyttum leikmönnum Bergischer HC í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf í dag, 27:25. Magdeburg hefur sjö stiga forskot í efsta sæti þegar níu umferðir eru eftir. Füchse Berlin getur reyndar náð öðru sætinu af Flensburg síðar í dag með sigri á HC Erlangen. Takist það verður sex stiga munur á tveimur efstu liðum deildarinnar.


Ómar Ingi Magnússon hélt upp á fæðingu sonar á dögunum með stórleik í Düsseldorf. Hann skoraði níu mörk auk einnar stoðsendingar. Felix Claar skoraði 10 mörk. Claar er væntanlegur til Íslands í vikunni með sænska landsliðinu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu. Elvar Örn Jónsson var umsvifamikill í vörn Magdeburg og var m.a. einu sinni vikið af leikvelli.

Noah Beyer skoraði sjö mörk fyrir Bergischer sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann. Bergischer er í fjórða neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar.

Eitt stig hjá Blæ

Blær Hinriksson og liðsfélagar sitja áfram í neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar. Þeir gerðu jafntefli við Stuttgart á heimavelli í dag, 29:29. Blær skoraði tvö mörk, gaf þrjár stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli.

Franz Semper skoraði níu mörk fyrir Leipzig sem er stigi á eftir Wetzlar sem vann GWD Minden í gærkvöld.

Torben Matzken skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Stuttgart.

Ýmir og félagar lögðu Lemgo

Ýmir Örn Gíslason fyrirliði Göppingen var að vanda með liðinu í dag þegar það lagði Lemgo, 30:27, á heimavelli Lemgo-liðsins. Göppingen færðist upp í 10. sæti deildarinnar með sigrinum sem er athyglisvert í ljósi góðrar frammistöðu Lemgo á tímabilinu.

Ýmir Örn skoraði ekki mark í leiknum. Elias Newel skoraði átta mörk fyrir Göppingen.

Niels Gerardus Versteijnen var atkvæðamestur leikmanna Lemgo með níu mörk.

Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -