- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Man ekki hvort Anton hafi farið yfir þetta með okkur

- Auglýsing -

„Tilfinningin er frábær. Ég er ógeðslega glöð og stolt. Ég er ánægð með karakterinn í okkur í dag,“ sagði Elísa Elíasdóttir, línumaður Vals, í samtali við handbolta.is eftir að liðið vann bikarmeistaratitilinn með fjögurra marka sigri á Haukum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í dag.

Haukar voru komnir fjórum mörkum yfir, 18:14, þegar síðari hálfleikur var hálfnaður. Þá tók Valur hins vegar leikinn yfir, skoraði níu mörk gegn einu og vann að lokum 23:19.

Valur er bikarmeistari í tíunda sinn – eftir magnaðan lokakafla


Spurð hvað hafi breyst á þessum kafla þegar Valur sneri taflinu alfarið við sagði Elísa:

„Vörnin byrjaði að smella saman og við byrjuðum að fara aðeins meira á breiddina hjá þeim, við náðum að teygja betur á vörninni þeirra. Þá opnaðist meira fyrir okkur. Það byrjaði allt að smella saman.“

Thea skipti sköpum

Fór Anton Rúnarsson þjálfari yfir þessa hluti með ykkur í leikhléi?

„Ég man það ekki!“ sagði hún og hló. „En Thea [Imani Sturludóttir] kemur náttúrlega inn á og hún er örvhent og það er allt öðruvísi í sókn að fá það. Ég myndi alveg segja að það væri stór hluti af þessu. Svo líka varnarlega, hún er ógeðslega góð þar,“ sagði Elísa.


Bikarmeistaratitilinn er sá eini sem Val tókst ekki að vinna á síðasta tímabili og því sérstaklega ánægjulegt fyrir liðið að hampa honum í ár

„Ekkert smá. Ég hef líka ekki unnið hann síðan ég var í ÍBV. Þannig að það er frábært að vera komin með hann núna í treyju Vals,“ sagði Elísa Elíasdóttir í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -