Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, efnilegur leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið. Nýi samninguinn gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028.
Margrét Áslaug er tvítugur vinstri hornamaður sem hefur verið í stóru hlutverki með Fram 2 í Grill 66 deildinni auk þess að koma við sögu í tíu leikjum með aðalliðinu í Olísdeildinni á tímabilinu. Í Grill 66 deildinni skoraði hún 22 mörk í 18 leikjum.
„Margrét er þrælefnilegur vinstri hornamaður sem við hlökkum mikið til að fylgjast með vaxa á næstu misserum.
Margrét er í mikilli Fram-fjölskyldu og foreldrar hennar til að mynda stórtæk í starfinu hjá okkur í FRAM, þvert á íþróttir. Virkilega ánægjulegt að halda í Margréti áfram næstu tvö tímabil,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.



