- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Markahæsti leikmaður Gróttu hefur framlengt samning sinn

- Auglýsing -

Ída Margrét Stefánsdóttir markahæsti leikmaður Gróttu hefur framlengt samninginn sinn við félagið út tímabilið vorið 2029. Ída Margrét er 23 ára gömul og kom fyrst til Gróttu á láni árið 2021. Hún staldraði þó stutt við það tímabilið þar sem hún var fljótlega kölluð til baka til Vals. Frá árinu 2022 hefur hún verið lykilleikmaður Gróttuliðsins og myndar í dag fyrirliðateymi liðsins með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur.


Ída er stórskytta og var markahæsti leikmaður liðsins á seinasta tímabili í Olísdeildinni. Hún hefur haldið uppteknum hætti í vetur og er langmarkahæsti leikmaður Gróttu hingað til með 68 mörk í níu leikjum.

„Ída er mikil keppnismanneskja sem er ótrúlega krefjandi og skemmtilegt að þjálfa. Það eru frábær tíðindi að hún verði áfram í Gróttu enda mikilvægur leikmaður fyrir liðið. Það verður gaman að vinna með henni áfram næstu árin“, sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu í tilkynningu.

Grótta sækir HK heim í Kórinn í kvöld klukkan 20. Liðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -