- Auglýsing -
Meirihluti handknattleiksliðs KA sem var í æfingabúðum í Ungverjalandi á dögunum er smitaður af kórónuveirunni. Akureyri.net greinir frá þessu.
Alls var 21 maður í hópnum að meðtöldum þjálfurum og fararstjóra. Á landamærunum reyndust 13 smitaðir, einn fékk óljósa niðurstöðu, segir Akureyri.net. Þrír höfðu áður smitast af veirunni. Enginn hefur alvarleg einkenni.
Auk æfinga í Búdapest og tveggja æfingaleikja þá fór hópurinn m.a. á þrjá leiki íslenska landsliðsins í riðlakeppni Evrópumótsins.
Eins segir Akureyri.net frá að nokkrir Akureyringar sem fóru út á EM sem áhorfendur hafi smitast í ferðinni og greinst jákvæðir við skimun við komuna heim.
- Auglýsing -