- Auglýsing -
Nú er 15 vikna sumarfríi lokið hjá liðunum sem taka þátt í Meistaradeild kvenna í handknattleik. Blásið verður til leiks í fyrstu umferðinni um helgina en fjórir leikir fara fram í dag og fjórir á sunnudaginn. Stærsti leikur helgarinnar er án efa viðureign ungverska stórliðsins Györ og Evrópumeistara Vipers en leikið verður á heimavelli ungverska liðsins í dag kl 16.00.
Leikir dagsins
A-riðill:
Dortmund – FTC | Laugardagur kl. 14.00 | Beint á EHFTV
- Þýska liðið sem er nú að taka þátt í annað sinn í Meistaradeildinni freistar þess að gera betur en á síðustu leiktíð það vann aðeins fjóra leiki.
- Svartfellski leikstjórnandinn Itana Grbic leikur sinn fyrsta leik með FTC í Meistaradeildinni í dag en hún gekk til liðs við félagið síðla sumars.
- FTC þarf fjóra sigurleiki í viðbót til þess að verða sjötta liðið í sögu Meistaradeildarinnar til þess vinna 100 leiki.
- Ungverska liðinu hefur ekki tekist að vinna sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni frá tímabilinu 2015/16.
- Liðin hafa ekki mæst áður í Evrópukeppnum.
Rostov-Don – Brest | Laugardagur kl. 14.00 | Beint á EHFTV
- Það verður athyglisvert að fylgjast með þessari viðureign en bæði þessi lið hafa háleit markmið fyrir tímabilið í Meistaradeildinni.
- Franski línumaðurinn Beatrice Edwige og brasilíska stórskyttan Eduarda Amorim leika sína fyrstu Meistaradeildarleiki í treyju rússneska liðsins.
- Rostov hefur farið vel af stað í rússnesku deildinni, hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína, þar á meðal með níu marka mun á móti CSKA.
- Brest missti í sumar tvo af sínum öflugustu leikmönnum undanfarin ár þegar Ana Gros og Isabelle Gullden ákváðu að róa á önnur mið.
- Pablo Morel sem tók við þjálfun Brest í sumar mun stýra liðinu í sínum fyrsta Meistaradeildarleik. Hann byrjaði ferlinn sinn sem þjálfari Brest ekki vel. Liðið tapaði gegn Bourg de Peage 37-31 í fyrst umferð í frönsku deildarinnar.
Podravka – Buducnost | Laugardagur kl. 16.00 | Beint á EHFTV
- Buducnost er aðeins einum sigurleik frá 150 sigurleikjum í Meistaradeildinni. Aðeins ungverska stórliðið Györ hefur náð þeim áfanga í sögu keppninnar.
- Margir leikmenn yfirgáfu herbúðir Buducnost í sumar. Þar á meðal Majda Mehmedovic, Jovanka Radicevic, Andrea Lekic, Allison Pineau, Milena Raicevic, Itana Grbic og Ema Ramusovic.
- Buducnost er með yngsta liðið í keppninni í ár en meðalaldur leikmanna liðsins er 21,8 ár. Meðalaldur leikmanna króatíska liðsins er 25,1 ár.
- Podravka er með lakasta sigurhlutfallið af þeim 16 liðum sem taka þátt í Meistaradeildinni í ár, 38,1%.
B-riðill:
Györ – Vipers | Laugardagur kl. 16.00 | Beint á EHFTV
- Þrátt fyrir að Vipers sé ríkjandi meistari þá er ungverska liðið það lið sem allir vilja vinna. Györ hefur ráðið lögum og lofum í kvennahandboltanum undanfarin ár og unnið Meistaradeildina fimm sinnum.
- Györ hefur aldrei tapað fyrir Vipers í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
- Það er nokkuð um meiðsli hjá báðum liðum í upphafi tímabils. Hjá Györ eru þær Estelle Nze Minko, Kari Brattset Dale, Linn Blohm og Dorottya Faluvegi allar meiddar og í herbúðum Vipers eru Heidi Løke, Silje Waade, Karoline Olsen og Vilde Jonassen á meiðslalistanum.
- Ungverski varnarsérfræðingurinn Szuzsanna Tomori skrifaði undir samning við Vipers á dögunum eftir að hafa verið samningslaus þegar veru hennar hjá ungverska liðinu Siófok lauk í sumar. Tomori spilaði með Györ 2007-10 og aftur 2015-19.
- Auglýsing -