Meistaradeild kvenna fór aftur af stað í gær með fimm leikjum. Í A-riðli tók Banik Most á móti ríkjandi meisturum í Vipers þar sem norska liðið sýndi enga miskunn og vann 22ja marka sigur, 43 – 21.
Fjórir leikir fóru svo fram í B-riðli. Danska liðið Esbjerg mætti aðeins með 12 leikmenn til Zagreb en vann örugglega með 12 marka mun, 30 – 18 gegn Lokomotiva. Metz lagði Kastamonu nokkuð auðveldlega, 35 – 24, á heimavelli.
Mesta spennan var í leik Buducnost og Storhamar þar sem að heimakonur unnu eins marks sigur, 24 – 23. Olivia Löfgvist gat tryggt Storhamar annað stigið á síðustu sekúndu en henni brást bogalistin í dauðafæri á línu.
Að lokum var það Györ sem tók á móti Rapid Búkaresti í leik þar sem að ungverska liðið vann þriggja marka sigur, 32 – 29, og varð fyrst liða til að leggja þær rúmensku að velli.
Meistaradeildin heldur áfram í dag með þremur leikjum í A-riðli.
Úrslit gærdagsins
A-riðill:
Banik Most 21 – 43 Vipers (15 – 20).
- Norska liðið bætti fyrra met sitt yfir flest skoruð mörk í leik í Meistaradeildinni. Fyrra metið var 42 mörk gegn Sävehof.
- Þetta er sjöundi tapleikurinn í röð hjá Banik Most í Meistaradeildinni.
- Enn og aftur fékk tékkneska liðið fleiri en 40 mörk á sig. Liðið hefur nú fengið að meðaltali 40,2 mörk á sig í leik.
- Marketa Jerabkova og Jana Knedlikova voru tékknesku löndum sínum erfiðar í þessum leik. Þær skoruðu samtals 15 mörk fyrir Vipers.
- Marrketa Jerabkova skoraði 11 mörk í leiknum og er nú í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn keppninnar með 49 mörk.
B-riðill:
Lokomotiva 18 – 30 Esbjerg (8 – 14).
- Lokomotiva skoraði sitt fyrsta mark á áttundu mínútu.
- Esbjerg spilaði feikilega vel varnarlega sem gerði heimaliðinu erfitt um vik.
- Nenand Sostaric þjálfari Lokomotiva breytti yfir í 5/1 vörn en danska liðið átti í engum vandræðum að brjóta sér leið í gegnum þá vörn.
- Esbjerg náði 10 marka forystu á 39. mínútu. Munurinn á liðunum var ekki hvað síst í sóknarnýtingunni. Lokamotiva var aðeins með 34% nýtingu á meðan Esbjerg var með 60%.
- Henny Reistad var markahæst í liði Esbjerg með sjö mörk en hjá Lokomotiva var Ana Malec markahæst með 6 mörk.
Metz 35 – 24 Kastamonu (18 – 14).
- Metz náði 7 – 2 forystu eftir aðeins fjögurra mínútna leik.
- Tyrkneska liðið reyndi hvað það gat til að minnka muninn en komust þó ekki nær en tvö mörk.
- Heimakonur tóku þá aftur við sér og náu fjögurra marka forystu á ný fyrir hálfleik.
- Metz náði tíu marka forskoti þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum.
- Monua Chebbah var markahæst hjá Kastamonu með sjö mörk
Hjá Metz var Bruna de Paula markahæst með sjö mörk. - Markverðirnir Hatadou Sako og Camille Depuiset voru samtals með 44,1% markvörslu hjá Metz.
Buducnost 24 – 23 Storhamar (12 – 11).
- Leikmenn beggja liða fóru sér í engu óðslega við að skora í upphafi leiksins. Eftir átta mínútur höfðu aðeins fjögur mörk verið skoruð.
- Norska liðið byrjaði betur í seinni hálfleik og eftir átta mínútur var liðið komið með tveggja marka forystu.
- Mikil spenna var á lokamínútu leiksins. Guro Nestaker kom heimakonum í forystu 24 – 23 en Storhamar fékk eina sókn til að jafna leikinn en síðasta markskotið missti marks.
Györ 32 – 29 Rapid Búkaresti (18 – 15).
- Leikurinn var jafn fyrstu 20 mínúturnar.
- Ungverska liðið náði að slíta sig frá því rúmenska á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks og var yfir, 18 – 15, í hálfleik.
- Með öflugum varnarleik náði Györ mest sjö marka forystu 27 – 20.
- Rúmenska liðið neitaði að gefast upp. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka hafði liðinu tekist að minnka muninn niður í tvö mörk, 29 – 27.
- Silje Solberg var hetjan í liði Györ. Hún varði 14 skot, mörg hver á mikilvægum köflum leiksins.
- Ana Gros var markahæst í liði Györ með 8 mörk. Hjá Rapid var Orlane Kanor markahæst með 7 mörk.