- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Metáhorf hjá RÚV á undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur

- Auglýsing -

Áhorfsmet á íþróttaleik í sjónvarpi hér á landi var sett á föstudagskvöldið þegar undanúrslitaleikur Íslands og Danmerkur á Evrópumóti karla í handknattleik var sendur út. Meðaláhorf á leikinn var 66,4% og uppsafnað áhorf 70%. Frá þessu segir á vef RÚV.

Fyrra met, 62,5% meðaláhorf var á leik Íslands og Slóveníu í milliriðlinum en það er 0,1% meira en var á leik Íslands gegn Argentínu á HM karla í fótbolta sem átti metið.

Í bronsleiknum við Króatíu var meðaláhorfið 63,1% sem hefði því verið met ef ekki væri fyrir undanúrslitaleikinn. Uppsafnað áhorf þar var 66,4%, segir enn fremur á RÚV.

Frétt RÚV: Undanúrslitaleikurinn sló áhorfsmetið

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -