- Auglýsing -

Mexíkó á mánudag og Marokkó á miðvikudag

Hart sótt að Elmari Erlingssyni í leiknum við Norður Makedóníu dag. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Íslenska landsliðið mætir Mexíkóum á mánudaginn klukkan 12 í fysta leiknum í milliriðlakeppni um sæti 17 til 24 á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í handknattleik í Póllandi. Tveimur dögum síðan eigast við Ísland og Marokkó klukkan 9.15. Víst er að eftir leikina tvo taka við tvær viðureignir á fimmtudag og föstudag um eitthvað af sætunum frá 17 til 24, allt eftir því hvernig gengur í leikjunum við Mexíkó og Marokkó.


Marokkó vann öruggan sigur á Mexíkó í síðustu umferð E-riðils í Katowice, 38:23. Landslið Marokkó hafnaði þar með í 3. sæti en Mexíkó rak lest fjögurra liða.

Marokkóbúar eru sýnd veiði en ekki gefin. Þeir stóðu hressilega í Dönum og Frökkum í fyrri hálfleik í viðureignum á miðvikudag og fimmtudag. Eins er skemmst að minnast þess að U21 árs landslið Íslands slapp með skrekkinn í viðureign við Marokkó HM fyrir tveimur árum.

Danir og Frakkar eru í tveimur efstu sætum E-riðils og leika við Færeyinga og Rúmena í fyrstu tveimur umferðum milliriðlakeppninnar um sæti í átta liða úrslitum.

Yngri landslið – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -