Miðasala á milliriðil Íslands er í fullum gangi og nú þurfa íslenskir stuðningsmenn að hafa hraðar hendur.
Ísland tryggði sér sæti í milliriðli Evrópumótsins með sigri á Póllandi í kvöld. Mikill áhugi er á meðal Íslendinga um að fjölmenna til Malmö, þar sem riðillinn fer fram, og eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga samkvæmt tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands.
Öll miðasala fer fram í gegnum mótshaldara á þessum hlekk.
Þessi hlekkur leiðir kaupendur á það svæði í höllinni þar sem íslenskir stuðningsmenn munu sitja þegar landsliðið leikur sína fjóra leiki.
Mikilvægt er að íslenskir stuðningsmenn sem ætla sér að mæta og styðja strákana tryggi sér miða strax, þar sem búast má við að miðarnir seljist hratt upp.



