- Auglýsing -
Í næstu viku verður sannkölluð handboltaveisla þegar undanúrslit og úrslit Powerade bikars kvenna og karla fara fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Miðasala er í fullum gangi á Stubbi.
Undanúrslit kvenna fara fram á miðvikudeginum 25. febrúar og undanúrslit karla fara fram degi síðar. Úrslitaleikir kvenna og karla fara svo báðir fram á laugardeginum 28. febrúar.
Bikardagskráin
Undanúrslit kvenna 25. febrúar:
Haukar – Fram kl. 18.00
Valur – KA/Þór kl. 20.15
Undanúrslit karla 26. febrúar:
FH – Haukar kl. 18.00
ÍR – KA kl. 20.15
Úrslitaleikur kvenna hefst svo klukkan 15.30 þann 28. febrúar og úrslitaleikur karla klukkan 18.30 sama dag.
- Auglýsing -


