- Auglýsing -
Miðasala á leiki íslenska landsliðsins í handknattleik kvenna í C-riðli heimsmeistaramótsins er hafin. Leikirnir fara fram í Stuttgart og verða gegn landsliðum Úrúgvæ, Serbíu og Þýskalands, 26., 28. og 30. nóvember.
Miðasala fer fram í gegnum eftirfarandi hlekk en einnig er hægt að nálgast hann á Instagram BIO.
Hlekkur á miðasölu: https://tinyurl.com/IHF2025-W-Iceland
Þegar komið er inn á hlekkinn þarf að setja eftirfarandi kóða í hólf sem á stendur “promotion code”
Kóðinn er eftirfarandi “IHF-FED-ISL”.
Þessi hlekkur verður opinn til og með 24. júlí.
Leikir Íslands í riðlakeppni HM kvenna:
26. nóvember: Þýskaland - Ísland.
28. nóvember: Ísland - Serbía.
30. nóvember: Ísland - Úrúgvæ.
- Leikirnir fara fram í Porsche-Arena, Stuttgart.
- Þrjú lið fara áfram í milliriðla.
- Neðsta liðið fer í keppnina um forsetabikarinn.
A-landslið kvenna – fréttasíða
Riðlaskipting og leikstaðir:
A-riðill (Rotterdam): | B-riðill (Hertogenbosch): |
Danmörk | Ungverjalandi |
Rúmenía | Sviss |
Japan | Senegal |
Króatía | Íran |
C-riðill (Stuttgart): | D-riðill (Trier): |
Þýskaland | Svartfj.land |
Serbía | Spánn |
Ísland | Færeyjar |
Úrúgvæ | Paragvæ |
E-riðill (Rotterdam): | F-riðill (Hertogenbosch): |
Holland | Frakkland |
Austurríki | Pólland |
Argentína | Túnis |
Egyptaland | Kína |
G-riðill (Stuttgart): | H-riðill (Trier): |
Svíþjóð | Noregur |
Brasilía | Angóla |
Tékkland | Suður Kórea |
Kúba | Kasakstan |
- Auglýsing -