Handknattleikskonan efnilega hjá Val, Ásdís Þóra Ágústsdóttir, varð fyrir því áfalli á dögunum að slíta krossband í viðureign Vals og Fram í 3. flokki. Staðfesting á meiðslunum hefur nú fengist. Þar með er ljóst að Ásdís Þóra, sem nýverið skrifaði undir samning við Lugi í Svíþjóð, leikur ekki meira með Val á keppnistímabilinu.
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals og faðir Ásdísar Þóru, staðfesti fregnirnar við handbolta.is í kvöld. Hann sagði að það skýrðist á allra næstu dögum hvenær Ásdís Þóra kemst í aðgerð en vonir standa til að það verði sem fyrst eftir páska.
Ásdís Þóra samdi á dögunum við sænska úrvalsdeildarliðið Lugi. Ágúst segir að félagið styðji þétt við bakið á Ásdísi Þóru rétt eins og Valur.
„Forráðamenn Lugi styðja hana 100% enda horfa þeir til hennar sem framtíðarleikmanns hjá félaginu,“ sagði Ágúst Þór við handbolta.is í kvöld.
„Auðvitað er þetta högg fyrir stelpuna. Nú er hinsvegar málið að nota tímann í endurhæfingunni rétt og vel og koma ennþá sterkari til baka. Ásdís Þóra fer út til Lugi í júlí eða ágúst, allt eftir hvernig gengur, enda er hún sem fyrr einbeitt á það sem hún er og vill gera. Þetta áfall breytir ekki hugarfari hennar,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals, en lið hans hefur orðið fyrir hverri blóðtökunni á fætur annarri allt síðan í september.