- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mikið áfall fyrir heimsmeistarana

- Auglýsing -

Heimsmeistarar Danmerkur hafa orðið fyrir miklu áfalli fyrir úrslitaleik Evrópumóts karla gegn Þýskalandi sem hefst klukkan 17 í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í dag. Simon Hald getur ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.

Hald hlaut höfuðhögg í leik Danmerkur gegn Íslandi í undanúrslitum á föstudag og þurfti af þeim sökum að fara af velli í byrjun síðari hálfleiks.

Hald er algjör lykilmaður í varnarleik Danmerkur og er sömuleiðis sterkur línumaður í sókn. Hefur hann ekki jafnað sig á höfuðmeiðslum sínum og getur því ekki spilað í dag.

Þessu greindi Henrik Kronborg, aðstoðarþjálfari Danmerkur, frá í samtali við dönsku sjónvarpsstöðina TV 2 Sport rétt rúmum klukkutíma áður en úrslitaleikurinn hefst.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -