Kvennaliði Györi ETO KC gengur ekki einungis vel inni á vellinum, þar sem liðið er ríkjandi Evrópumeistari og ungverskur meistari og er að öðrum ólöstuðum sterkasta félagslið heims. Utan vallar er nefnilega mikið barnalán á meðal leikmanna liðsins.
Danski miðillinn Hbold.dk vekur athygli á því að franska landsliðskonan Estelle Nze Minko hafi nýverið eignast sitt fyrsta barn og að danski landsliðsmarkvörðurinn Sandra Toft hafði skömmu áður eignast sitt fyrsta barn.
Það er ekki allt og sumt þar sem norska landsliðskonan Kari Brattset Dale eignaðist sitt annað barn fyrir rúmum einum mánuði.
Mæðurnar innan herbúða Györi eru því fjórar þar sem fyrir er norska landsliðskonan Veronica Kristiansen, sem á tvö börn og spilar enn af fullum krafti.



