Mikill efniviður er fyrir hendi hjá handknattleiksdeild ÍBV. Fyrir vikið hafa margir ungir leikmenn stigið sín fyrstu skref með meistaraflokksliði félagsins í Olísdeildinni í vetur. Töluverð uppstokkun varð á liði ÍBV fyrir tímabilið sem varð til þess að fleiri yngri leikmenn fengu tækifæri til þess að láta ljós sitt skína. Samhliða breytingunum var árangurinn mjög góður en ÍBV hafnaði í fjórða sæti Olísdeildar þegar upp var staðið í gærkvöld og mætir KA í átta liða úrslitum.
ÍBV handbolti vekur athygli á góðu stafi og Afreksakademíu félagsins á Facebook-síðu sinni.
Sex uppaldir peyar léku sína fyrstu leiki í meistaraflokki í vetur. Þeir eru:
Egill Oddgeir Stefánsson.
Heimir Halldór Sigurjónsson.
Sigurmundur Gísli Unnarsson.
Tómas Runólfur Gunnarsson.
Einar Bent Bjarnason.
Haukur Leó Magnússon.
Tíu úr bikarmeistaraliðinu
Einnig voru 10 efnilegir leikmenn úr bikarmeistaraliði 3. flokks félagsins sem komu við sögu í vetur. Allir þessir leikmenn hafa stundað nám við Aftreksakademíu ÍBV og margir þeirra leikið gríðarlega stórt hlutverk í vetur. Þeir eru:

Morgan Goði Garner.
Andri Magnússon.
Anton Frans Sigurðsson.
Elís Þór Aðalsteinsson.
Andri Erlingsson.
Heimir Halldór Sigurjónsson.
Haukur Leó Magnússon.
Tómas Runólfur Gunnarsson.
Einar Bent Bjarnason.
Sigurmundur Gísli Unnarsson.




