- Auglýsing -
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Akureyri:
„Það er svo mikið meira í þessu en að við séum að verða deildarmeistarar og fara upp í Olísdeildina,“ segir Halldór Kristinn Harðarson leikmaður Þórs eftir að liðið vann Grill 66-deildina í dag og endurheimti sæti í Olísdeildinni eftir fjögurra ár.
„Miklar tilfinningar eru í gangi,“ segir Halldór Kristinn ennfremur og minnir á að ekki sé langt síðan að til stóð að leggja handboltann niður hjá Þór. Þá tók hann fram skóna eftir nokkurra ára hlé.
„Ég grét á bekknum áðan þegar 1.500 Þórsarar voru styðja á bak við okkur. Fyrir þetta stendur Þór,“ segir Halldór Kristinn.
Lengra viðtal við Halldór Kristinn er í myndskeiði hér fyrir ofan.
- Auglýsing -