- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Misjafnt gengi Íslendinga í Evrópudeildinni

- Auglýsing -

Stiven Tobar Valencia og samherjar í portúgalska liðinu Benfica standa vel að vígi í 3. riðli 16-liða úrslita Evrópudeildar karla eftir annan sigurinn í röð. Í kvöld lagði Benfica sænska liðið IFK Kristianstad sem Einar Bragi Aðalsteinsson leikur með, 38:34, í Kristianstad Arena.

Fimm íslensk mörk

Stiven Tobar skoraði þrjú mörk fyrir Benfica en Einar Bragi tvö mörk, bæði í fyrri hálfleik. Benfica hefur fjögur stig og góða von um sæti í útsláttarkeppninni þótt eftir séu tvær umferðir af riðlakeppninni. Kristianstad stendur hins vegar höllum fæti í neðsta sæti en þó ekki úrkulna vonar um sæti í útsláttarkeppninni.

Skanderborg í fínum málum

Skanderborg AGF er í efsta sæti riðils tvö með sex stig. Liðið lagði Noregsmeistara Elverum, 32:25, í Árósum í kvöld. Kristján Örn Kristjánsson, Donni, er enn þá fjarverandi vegna kviðslitsaðgerðar.

Tryggvi skoraði eitt mark

Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark af línunni fyrir Elverum auk þess að verja eitt skot í vörninni. Elverum vann Porto á útivelli í síðustu viku og heldur áfram í von um sæti í útsláttarkeppninni sem liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti riðlakeppninnar taka þátt.

Hlynur Leifsson var eftirlitsmaður EHF á leiknum í Árósum.

12 marka sigur hjá Heiðmari

Hannover-Burgdorf vann stórsigur á Kadetten Schaffhausen í riðli fjögur, 36:24. Leikið var í Schaffhausen í Sviss. Hannover-Burgdorf var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13. Leikmenn Kadetten áttu ekki roð í þýska liðið í síðari hálfleik.

Óðinn Þór Ríkharðsson var bestur leikmanna Kadetten með átta mörk úr níu skotum. Eitt marka sinna skoraði Óðinn Þór úr vítakasti.

Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf sem er efst í riðlinum með sex stig. Fredericia og RK Nexe hafa tvö stig hvort en mætast í kvöld. Þrír leikir til viðbótar fara fram á sama tíma.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -