Justus Fischer, línu- og varnarmaðurinn ungi hjá TSV Hannover-Burgdorf og þýska landsliðinu, missti óvænt af úrslitaleik EM 2026 gegn Danmörku í Herning í byrjun mánaðarins þegar hann veiktist skyndilega.
Fischer, sem er nýorðinn 23 ára, hafði átt frábært mót en heltist úr lestinni stuttu fyrir leik. Var það áfall fyrir leikmanninn sjálfan og sömuleiðis Alfreð Gíslason þjálfara Þýskalands.
„Þremur klukkustundum fyrir leikinn var spurningin einfaldlega: „Geturðu eða geturðu ekki spilað?“ Á þeim tímapunkti var ég með hita og kuldahroll. Það var ekki nógu gott,“ sagði hann í samtali við Sky Sport í Þýskalandi.
Telur að hann hafi fengið matareitrun
Fischer reyndi hvað hann gat til þess að spila leikinn og ferðaðist með liðinu í keppnishöllina í Herning í Danmörku.
„Ég reyndi að setja lóð á hjólið. Þá svimaði mig um leið og þurfti aftur að kasta upp. Það var augljóst að ég gæti ekki hjálpað liðinu. Það var búið að taka ákvörðunina,“ sagði Fischer, sem telur að hann hafi fengið matareitrun.
Fischer var keyrður aftur upp á hótelherbergi þar sem hann hugðist horfa á leikinn.
„Ég get í sannleika sagt að ég svaf í gegnum svona 70% af úrslitaleiknum því mér leið virkilega illa. Ég vaknaði á einhverjum tímapunkti í síðari hálfleiknum,“ sagði Fischer.




