Thea Imani Sturludóttir leikur nær örugglega ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum sem fram undan eru gegn Svartfellingum á miðvikudag og sunnudag í undankeppni EM í handknattleik. Arnar Pétursson sagði við handbolta.is í dag að hann reikni ekki með Theu Imani. Hún hefur alls ekki jafnað sig af meiðslum sem hrjáð hafa hana síðan í upphafi keppnistímabilsins. Um er að ræða tognun mjög ofarlega aftan í hægra læri. Ljóst er að þátttaka Theu í úrslitaleik bikarkeppninnar síðasta laugardag bætti ekki úr skák.
Mjög ólíklegt
„Eins og staðan er núna er mjög ólíklegt að Thea verði með okkur í leikjunum,“ sagði Arnar við handbolta.is áður en æfing hófst hjá landsliðinu í íþróttahúsinu í Safamýri síðdegis.
Fyrr í dag var tilkynnt að Þórey Anna Ásgeirsdóttir væri barnshafandi og tæki ekki þátt í fleiri leikjum á keppnistímabilinu.
Díana Dögg með í síðari leiknum
Þar að auki verður Díana Dögg Magnúsdóttir ekki með í heimaleiknum við Svartfellinga á Ásvöllum á miðvikudag. Hún á fyrir höndum lokapróf í verkfræðinámi sínu í Þýskalandi undir lok vikunnar. Díana Dögg mætir galvösk í síðari leikinn við Svartfellinga í Podgorica á sunnudaginn.
Segir sig sjálft
„Það segir sig sjálft að það hefur áhrif á okkur að missa út þrjá mjög reynslumikla örvhenta leikmenn,“ sagði Arnar sem verður að stilla upp landsliðinu með hægrihandar leikmönnum í hægri skyttustöðunni. Væntanlega kemur það í hlut Lovísu Thompson og Söru Daggar Hjaltadóttur að taka að sér hlutverkin.
Fyrri leikur Íslands og Svartfjallalands í undankeppni EM kvenna hefst klukkan 18 á miðvikudaginn á Ásvöllum.
- Miðasala stendur yfir á stubb.is.




