- Auglýsing -
- Norski landsliðsmaðurinn Sebastian Barthold gengur til liðs við Mors-Thy í sumar eftir eins árs veru hjá Magdeburg. Barthold þekkir vel til í danska handboltanum eftir að hafa verið í átta ár með Aalborg Håndbold áður en hann hljóp í skarðið hjá Magdeburg á síðasta ári þegar Matthias Musche meiddist.
- Svartfellska handknattleikskonan Itana Grbić gefur ekki kost á sér í landsliðið í tvo síðustu leikina í undankeppni EM, gegn Portúgal og Færeyjum. Grbić er vonsvikin með fá tækifæri með landsliðinu í undanförnum leikjum, m.a. gegn Íslandi í byrjun mars. Grbić hefur leikið 120 landsleiki og átt sæti í landsliðinu í 11 ár, með hléum, vegna þess að henni hefur nokkrum sinnum runnið í skap og gefið landsliðið upp á bátinn. Grbić skoraði fimm mörk í leikjunum tveimur við íslenska landsliðið í byrjun mars.
- Síðari umferð útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fer fram í kvöld. Íslenskir handknattleiksmenn verða á ferðinni með fjórum liðum sem eiga það öll sammerkt að eiga á brattann að sækja.
- Reynir Þór Stefánsson, Arnar Freyr Arnarsson og liðsfélagar í MT Melsungen verða að bíta í skjaldarrendur eftir sex marka tap fyrir Fredericia HK, 35:29, í fyrri viðureigninni í Danmörku fyrir viku.
- Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og hans samherjar í Skanderborg AGF eiga einnig fyrir höndum erfiðan leik gegn Flensburg eftir sex marka tap, 38:32, á heimavelli í síðustu viku. Flensburg vann Evrópudeildina á síðasta ári.
- Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í IFK Kristianstad töpuðu með tveggja marka mun, 36:34, fyrir RK Nexe á heimavelli. Sænska liðið mætir galvaskt til leiks í Króatíu í kvöld minnugt góðs sigurs á útivelli gegn Benfica í lokaumferð riðlakeppninnar fyrir nokkrum vikum.
- Víst er að verkefni Tryggva Þórissonar og liðsmanna Elverum verður erfitt. Þeir töpuðu með 12 marka mun, 36:24, fyrir Montpellier í Frakklandi fyrir viku og verða að trúa á kraftaverk á heimavelli í kvöld.
- Sigurliðin taka sæti í átta liða úrslitum.
- Auglýsing -


