- Auglýsing -
- Berta Rut Harðardóttir og samherjar hennar í Holstebro fylgdu í gær eftir góðum sigri í 1. umferð dönsku 1. deildarinnar í handknattleik með öðrum sigurleik í annarri umferð í gærkvöld. Að þessu sinni vann Holstebro lið Søndermarkens, 32:26. Berta Rut skoraði tvö mörk.
- Andrea Jacobsen og félagar í EH Aalborg unnu sinn fyrsta leik í dönsku 1. deildinni í gær. EH Aalborg vann Gudme HK frá Fjóni með 11 marka mun í fyrsta heimaleik tímabilsins, 30:19. Andrea átti eins og Berta Rut góðan leik og skoraði m.a. þrjú mörk.
- Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði fimm mörk en Ásdís Guðmundsdóttir ekkert þegar lið þeirra, Skara HF tapaði á útivelli fyrir Kristianstad HK, 34:29, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta var annað tap Skara HK í deildinni og er liðið án stiga. Kristianstad, sem Andrea Jacobsen lék með um fjögurra ára skeið, hefur farið vel af stað er með fjögur stig.
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fjögur mörk í öruggum sigri IFK Skövde á Hammarby, 30:25, á heimavelli í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær.
- Tryggvi Þórisson skoraði ekki mark þegar Sävehof vann Hallby HK, 31:22, í fyrsta leik liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn fór fram í Jönköping, heimavelli Hallby, að viðstöddum 1.200 áhorfendum.
- Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia Håndboldklub máttu bíta í það súra epli að tapa í heimsókn sinni til Bjerringbro/Silkeborg, 25:24, í fjórðu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Þetta var fyrsta tap Fredericialiðsins í deildinni á keppnistímabilinu. Slakur fyrri hálfleikur reyndist þungur á metum þegar leikurinn var gerður upp. Að honum loknum var Fredericia fimm mörkum undir, 12:7.
- Einar Þorsteinn Ólafsson kom ekki mikið við sögu í leiknum en hann er leikmaður Fredericia Håndboldklub sem nú er í fimmta sæti deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki. Nokkrir leikir eru eftir í fjórðu umferð. Bjerringbro/Silkeborg er í fjórða sæti með sex stig eftir fjóra leiki. GOG, Aalborg og Kolding eru efst með sex stig hvert eftir þrjá leiki. Síðarnefnda liðið hefur ekki byrjað betur í átta ár.
- Úkraínska meistaraliðið HC Motor tapaði fyrir Tusem Essen, 30:22, í þýsku 2. deildinni í gærkvöld og situr á botninum án stiga eftir þrjá leiki. Roland Eradze er aðstoðarþjálfari HC Motor.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.
- Auglýsing -